Skráðar gistinætur í ágúst voru 1.522.000 sem er um 13% aukning frá ágúst 2022 (1.347.000). Fjöldi gistinátta á hótelum var 599.200 sem er nánast það sama og í ágúst á fyrra ári.
Fluttar voru út vörur fyrir 68,0 milljarða króna fob í ágúst 2023 (68,0 milljarða skv. bráðabirgðatölum) og inn fyrir 107,6 milljarða króna cif (107,3 milljarða) eftir endurskoðun á bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í ágúst voru því óhagstæð um 39,6 milljarða króna (39,3 milljarða). Talnaefni hefur verið uppfært.
Landaður afli í júlí 2023 var 101,7 þúsund tonn að verðmæti 14,6 milljarðar króna við fyrstu sölu. Aflaverðmæti á tólf mánaða tímabilinu frá ágúst 2022 til júlí 2023 var um 198 milljarðar sem er 6,1% aukning miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan. Talnaefni hefur verið uppfært.
Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í september 2023, hækkar um 0,35% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkar um 0,18%. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 8,0% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 7,7%.