Fluttar voru út vörur fyrir 72,4 milljarða króna fob í ágúst 2026 og inn fyrir 135,5 milljarða cif (129,1 milljarð króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í ágúst, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 63,1 milljarð króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 33,6 milljarða króna í ágúst 2025 á gengi hvors árs fyrir sig.
Vöruskiptajöfnuðurinn í ágúst 2026 er því 29,5 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 470 milljarða króna sem er 31,6 milljörðum króna hagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.
Verðmæti vöruútflutnings í ágúst jókst um 4,1 milljarð á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í ágúst 2026 var 5,3 milljörðum króna meira (8%) en í ágúst 2025, fór úr 67,1 milljarði króna í 72,4 milljarða, aðallega vegna aukningar í útflutningi á iðnaðarvörum, sérstaklega áli.
Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 954,8 milljarðar króna og jókst um 4,1 milljarð miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða nær óbreytt á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 50% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra dróst saman um 4% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 39% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 6% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.
Verðmæti vöruinnflutnings dróst saman um 2% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 135,5 milljörðum króna í ágúst 2026 samanborið við 100,7 milljarða í ágúst 2025 og jókst því um 34,8 milljarða króna eða um 35%. Aukning skýrist einkum af innflutningi á eldsneyti og smurolíum, fjárfestingavörum og hrá- og rekstrarvörum.
Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.424,8 milljarðar króna og dróst saman um 27,6 milljarða, miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 2% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var mestur í innflutningi á hrá- og rekstarvörum og fjárfestingavörum. Mest var aukning í innflutningi á eldsneyti og smurolíum ásamt neysluvörum og mat- og drykkjarvörum.
Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 185,6 og var gengið 2,1% sterkara frá tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 0,2% veikara í ágúst 2026 (183,3) samanborið við ágúst 2025 (183,0).
Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir ágúst og gætu niðurstöður breyst.