TALNAEFNI VINNUMARKAÐUR 07. SEPTEMBER 2026

Alls voru um 238.800 einstaklingar starfandi á íslenskum vinnumarkaði í júlí 2026 samkvæmt skrám sem er svipaður fjöldi starfandi og var í júlí 2025. Fjöldi starfandi kvenna í júlí var um 111.200 og fjöldi starfandi karla um 127.600.

Athygli er vakin á því að um er að ræða bráðabirgðatölur þar sem mánaðarlegar uppfærslur á staðgreiðsluskrá ná jafnan nokkra mánuði aftur í tímann. Nýjustu tölur gætu tekið breytingum í næstum uppfærslum, Jafnframt eru aðferðir við framleiðslu hagtalna úr staðgreiðslugögnum í stöðugri endurskoðun og gæti bætt verklag haft minniháttar áhrif á niðurstöður.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.