Tilraunatölfræði


Mannfjöldaspá eftir fjölskyldugerð

Samantekt

Í þessari tilraunatölfræði er spáð fyrir um fjölda og hlutfalli einstaklinga eftir fjölskyldugerð, ásamt óvissumörkum. Fjölskyldugerðir sem fjallað er um eru eftirfarandi: hjónaband eða óvígð sambúð án barna , hjónaband eða óvígð sambúð með börnum, einstæðir foreldrar með börn og einstaklingar sem eru ekki í kjarnafjölskyldu (einhleypir einstaklingar).

Lýsing

Við líkanagerð og útreikning spárinnar eru notaðar hagtölur sem Hagstofa Íslands gefur út og byggja á skráargögnum. Notuð eru gögn um heildarmannfjölda á Íslandi (1998-2025) og fjölda einstaklinga eftir fjölskyldugerð, auk sögulegra gagna og spár um fæðingartíðni og heildarmannfjölda.

Spár um hlutfall einstaklinga eftir fjölskyldugerð eru gerðar með slembilíkönum (stochastic models). Við útreikninga er stuðst við mannfjöldaspá og fæðingartíðni, bæði fyrir liðin ár og samkvæmt spá. Þessar upplýsingar eru birtar árlega og byggja á skráargögnum fyrir liðin ár og líkindalíkönum (Bayes tauganetalíkönum). Þau eru notuð, ásamt spáðum hlutföllum, til að spá um fjölda einstaklinga í hverri fjölskyldugerð. Tengill á opinn kóða: GitHub

Markmið

Mannfjöldaspár eftir fjölskyldugerð eru gerðar til að mæta eftirspurn frá notendum hjá ríki, sveitarfélögum, rannsakendum í fræðasamfélagi og atvinnulífi, sem og almennum notendum.

Mannfjöldaspá eftir fjölskyldugerð

Síðast uppfært: 26. nóvember 2026

Mannfjöldaspár eftir fjölskyldugerð 2026-2076 sýna að:

  • hlutfall einhleypra og para án barna mun halda áfram að hækka en hlutfall fólks í fjölskyldum sem samanstanda af pörum eða einstæðum foreldrum með börn heldur áfram að lækka.
  • samkvæmt spánni fjölgar pörum án barna og einhleypum hraðast á tímabilinu. Fjöldi einstæðra foreldra með börn mun vaxa hægt, knúinn áfram af heildarfólksfjölgun. Fjöldi einstaklinga í fjölskyldum para með börn helst frekar stöðugur fyrstu 15 ár spátímabilsins en þeim fækkar hratt á síðari hluta þess.

Athugið að heildarmannfjöldaspár hafa úrslitaáhrif á spár um fjölda einstaklinga eftir fjölskyldugerð, og þær eru aftur á móti mjög háðar tölum um fólksflutninga. Mikil óvissa ríkir um spár um fólksflutninga og geta þær breyst vegna samfélagslegrar þróunar eða vistfræðilegra orsaka innanlands eða alþjóðlega.


Hlutfall einstaklinga eftir fjölskyldugerð 1998-2076



Mannfjöldi eftir fjölskyldugerð 1998-2076


Talnaefni

Mannfjöldaspá eftir fjölskyldugerð 261126 (xlsx)


Öllum eru heimil afnot af tilraunatölfræði Hagstofu Íslands. Vinsamlegast getið heimildar.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100. Netfang: upplysingar@hagstofa.is