FRÉTT VINNUMARKAÐUR 21. OKTÓBER 2026

Fjöldi atvinnulausra í september 2026 á aldrinum 16 til 74 ára var 15.300 samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 5,7%, hlutfall starfandi var 75,0% og atvinnuþátttaka 79,6%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 1,1 prósentustig á milli ágúst og september 2026, hlutfall starfandi hækkaði um 1,2 prósentustig og atvinnuþátttaka jókst um 0,4 prósentustig.

Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var atvinnuleysi 5,1% í september 2026. Fjöldi atvinnulausra var um 11.900. Hlutfall starfandi var 75,6%, sem samsvarar tæplega 222.800 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 79,7% eða um 234.700 manns á vinnumarkaði. Samanborið við sama mánuð 2025 jókst atvinnuleysi um 1,9 prósentustig, hlutfall starfandi lækkaði um þrjú prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði um 1,4 prósentustig.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.