TALNAEFNI VINNUMARKAÐUR 30. APRÍL 2026

Í mars 2026 voru 14.700 atvinnulausir samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 6,3%, hlutfall starfandi var 75,4% og atvinnuþátttaka 80,5%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi minnkaði um 0,7 prósentustig á milli febrúar og mars 2026, hlutfall starfandi lækkaði um 0,3 prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði um eitt prósentustig.

Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var atvinnuleysi á meðal fólks á aldrinum 16 til 74 ára 6,4% í mars 2026. Fjöldi atvinnulausra var um 15.100. Hlutfall starfandi var 75,5%, sem samsvarar tæplega 221.000 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 80,6% eða um 236.100 manns á vinnumarkaði. Samanborið við sama mánuð 2025 jókst atvinnuleysi um 2,7 prósentustig, hlutfall starfandi lækkaði um 2,4 prósentustig og atvinnuþátttaka stóð nánast í stað.

Um gögnin
Frá því í nóvember 2025 hefur svörun þátttakenda vinnumarkaðsrannsóknar aukist umtalsvert, og þá sérstaklega á meðal innflytjenda (16 til 74 ára) þar sem svarhlutfall hefur farið úr um og yfir 17% að jafnaði síðastliðin tvö ár í tæplega 41% nú í febrúar 2026. Þetta hefur leitt til þess að forsendur á úrvinnslu rannsóknarinnar hafa breyst og til að mæta þessum breyttu aðstæðum hafa vogir rannsóknarinnar verið endurmetnar. Mánaðarlegar niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar fyrir desember 2025 og janúar og febrúar 2026 hafa verið endurreiknaðar með þessari nýju aðferð.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.