Í júlí 2026 var fjöldi atvinnulausra á aldrinum 16 til 74 ára 14.500 samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 6,3%, hlutfall starfandi var 73,8% og atvinnuþátttaka 78,7%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 1,2 prósentustig á milli júní og júlí 2026, hlutfall starfandi lækkaði um 0,9 prósentustig og atvinnuþátttaka jókst um 0,1 prósentustig.
Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknarinnar var atvinnuleysi 5,5% í júlí 2026 og fjöldi atvinnulausra um 12.900. Hlutfall starfandi var 75,5%, sem samsvarar tæplega 221.900 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 79,8% eða um 234.800 manns á vinnumarkaði. Samanborið við sama mánuð 2025 jókst atvinnuleysi um 2,3 prósentustig, hlutfall starfandi lækkaði um 4,8 prósentustig og atvinnuþátttaka dróst saman um 3,1 prósentustig.