FRÉTT VINNUMARKAÐUR 27. MAÍ 2026

Í apríl 2026 voru 13.500 atvinnulausir samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 5,8%, hlutfall starfandi var 75,4% og atvinnuþátttaka 80%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi minnkaði um 0,5 prósentustig á milli mars og apríl 2026, hlutfall starfandi stóð í stað og atvinnuþátttaka dróst saman um 0,5 prósentustig.

Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var atvinnuleysi á meðal fólks á aldrinum 16 til 74 ára 6,6% í apríl 2026. Fjöldi atvinnulausra var um 15.300. Hlutfall starfandi var 74,2%, sem samsvarar tæplega 217.200 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 79,4% eða um 232.500 manns á vinnumarkaði. Samanborið við sama mánuð 2025 jókst atvinnuleysi um 2,6 prósentustig, hlutfall starfandi lækkaði um 3,3 prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði um 1,3 prósentustig.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.