Helstu niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands fyrir þriðja ársfjórðung 2026 sýna að 235.100 manns á aldrinum 16–74 ára voru að jafnaði á vinnumarkaði. Af þeim voru 222.100 starfandi og 13.000 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall þeirra af mannfjölda, eða atvinnuþátttaka, var 79,9%. Hlutfall starfandi einstaklinga af mannfjölda var 75,5%. Á meðal 16 – 74 ára á vinnumarkaði var atvinnuleysi 5,5%.
Á þriðja ársfjórðungi 2026 voru 100.900 konur starfandi, eða 70,6%, en karlar voru 121.200 eða 80%. Að jafnaði voru 181.700 manns við vinnu í hverri viku ársfjórðungsins eða 81,8% starfandi fólks og 61,7% af heildarmannfjölda 16–74 ára. Meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku var 35,6 klukkustundir hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 38,8 klukkustundir hjá þeim sem voru í fullu starfi og 22,1 klukkustundir hjá þeim sem voru í hlutastarfi.
Samanborið við þriðja ársfjórðung 2025 fækkaði starfandi fólki um 8.400 manns og hlutfall starfandi af mannfjölda lækkaði um 3,8 prósentustig. Þegar litið er til kynja fækkaði starfandi konum um 5.700 á meðan starfandi körlum fækkaði um 2.700. Hlutfall starfandi kvenna lækkaði því á milli ára um 5,2 prósentustig en hlutfall starfandi karla um 2,7 prósentustig.
Af starfandi fólki á þriðja ársfjórðungi 2026 voru um 179.300 í fullu starfi, eða 80%, og um 41.500 í hlutastarfi eða 18,7%. Fækkun varð á þeim sem voru í fullu starfi um 3.400 manns frá þriðja ársfjórðungi 2025 en hlutfall þeirra af heildarfjölda starfandi hækkaði um 1,4 prósentustig. Af starfandi konum voru 74% í fullu starfi á þriðja ársfjórðungi og 86,2% starfandi karla. Af þeim sem voru í hlutastarfi töldust um 8.700 manns vinnulitlir eða 3,9% af öllum starfandi. Á sama ársfjórðungi 2025 voru 2,8% vinnulitlir en þá var fjöldi þeirra 6.500. Vinnulitlir eru þeir sem telja sig vera í hlutastarfi, vilja vinna fleiri vinnustundir en þeir gera og geta hafið vinnu í auknum mæli innan tveggja vikna.
Meðalfjöldi venjulegra vinnustunda
Á þriðja ársfjórðungi 2026 var meðalfjöldi venjulegra vinnustunda á viku 38,2 klukkustundir í aðalstarfi. Venjulegar vinnustundir á viku eru þær klukkustundir sem fólk telur sig vinna að jafnaði í aðalstarfi sínu í hefðbundinni vinnuviku. Til samanburðar var meðalfjöldi venjulegra vinnustunda 38,4 stundir á þriðja ársfjórðungi 2025. Á þriðja ársfjórðungi 2026 voru venjulegar vinnustundir kvenna að meðaltali 35,5 stundir en 40,4 stundir hjá körlum. Á sama ársfjórðungi 2025 voru þær að meðaltali 40,9 stundir hjá körlun en óbreyttur hjá konum.
Atvinnuleysi 5,5%
Á þriðja ársfjórðungi 2026 töldust að meðaltali 13.000 einstaklingar atvinnulausir eða 5,5% af heildarvinnuafli 16-74 ára. Mældist atvinnuleysið 5,3% hjá konum og 5,7% hjá körlum. Til samanburðar voru um 9.300 einstaklingar atvinnulausir á þriðja ársfjórðungi 2025 og var hlutfall þeirra af vinnuafli nokkru lægra en nú eða 3,9%. Atvinnuleysi á meðal kvenna var þá 3,3% og 4,4% á meðal karla.
Í aldurshópnum 16 til 24 ára var atvinnuleysi 9,1% en var 7,0% á sama ársfjórðungi árið 2025. Hjá aldurshópnum 25 til 54 ára var atvinnuleysi 5,8% en 3,9% á sama ársfjórðungi árið 2025. Hjá elsta hópnum, 55-74 ára, var atvinnuleysið 1,6% samanborið við 1,3% á þriðja ársfjórðungi síðasta árs.
Niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar frá 2021 hafa verið endurreiknaðar með uppfærðri aðferð við útreikning vinnutíma til að tryggja betra samræmi við skilgreiningar vinnumarkaðsrannsóknar evrópska hagskýrslusamstarfsins (EU-LFS). Jafnframt byggir flokkun einstaklinga í fullt starf og hlutastarf nú eingöngu á eigin mati svarenda í stað fjölda vinnustunda. Breytingarnar hafa áhrif á áður birtar niðurstöður og valda broti í tímaröðinni milli áranna 2020 og 2021.