Alls voru um 219.600 einstaklingar starfandi á íslenskum vinnumarkaði í apríl 2026 samkvæmt skrám. Fjöldi starfandi kvenna í apríl var um 102.800 og fjöldi starfandi karla um 116.800.
Athygli er vakin á því að um er að ræða bráðabirgðatölur þar sem mánaðarlegar uppfærslur á staðgreiðsluskrá ná jafnan nokkra mánuði aftur í tímann. Jafnframt eru aðferðir við framleiðslu hagtalna úr staðgreiðslugögnum í stöðugri endurskoðun og gæti bætt verklag haft minniháttar áhrif á niðurstöður.