TALNAEFNI VINNUMARKAÐUR 07. OKTÓBER 2026

Alls voru um 235.200 einstaklingar starfandi á íslenskum vinnumarkaði í ágúst 2026 samkvæmt skrám. Starfandi einstaklingum fjölgaði um 200 á milli ára sem samsvarar 0,1% hækkun. Fjöldi starfandi kvenna í ágúst var um 109.400 og fjöldi starfandi karla um 125.700.

Athygli er vakin á því að um er að ræða bráðabirgðatölur þar sem mánaðarlegar uppfærslur á staðgreiðsluskrá ná jafnan nokkra mánuði aftur í tímann. Jafnframt eru aðferðir við framleiðslu hagtalna úr staðgreiðslugögnum í stöðugri endurskoðun og gæti bætt verklag haft minniháttar áhrif á niðurstöður.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.