TALNAEFNI VERÐLAG 19. JÚNÍ 2026

Talnaefni um landsframleiðslu, einstaklingsbundna neyslu og verðlag í Evrópu árið 2025 hefur verið uppfært. Tölurnar eru settar fram í kaupmáttarstöðlum (PPS), þar sem tekið er tillit til þess hve mikið af vörum og þjónustu fæst fyrir sömu fjárhæð í mismunandi löndum.

Landsframleiðsla á mann á Íslandi var 28% meiri en í Evrópusambandinu árið 2025 (ESB-27, skilgr. 2020). Einstaklingsbundin neysla á mann á Íslandi var 15% meiri en í Evrópusambandinu árið 2025. Verðlag á mat og drykk var 56% hærra á Íslandi en í Evrópusambandinu að jafnaði árið 2025.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.