Fluttar voru út vörur fyrir 87,5 milljarða króna fob í september 2026 og inn fyrir 133,2 milljarða cif (127,1 milljarð króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í september, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 45,7 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 44,9 milljarða í september 2025 á gengi hvors árs fyrir sig.
Vöruskiptajöfnuðurinn í september 2026 er því 0,8 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 470,7 milljarða króna sem er 50,7 milljörðum hagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.
Verðmæti vöruútflutnings í september jókst um 22,1 milljarð á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í september 2026 var 10,1 milljarði króna meira (13%) en í september 2025, fór úr 77,4 milljörðum króna í 87,5 milljarða, aðallega vegna aukningar í útflutningi á iðnaðarvörum, aðallega áli.
Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 964,9 milljarðar króna og jókst um 22,1 milljarð miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða 2% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 51% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra dróst saman um 1% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 39% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 5% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.
Verðmæti vöruinnflutnings dróst saman um 2% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 133,2 milljörðum króna í september 2026 samanborið við 122,3 milljarða í september 2025 og jókst því um 10,9 milljarða króna eða um 9%. Aukning skýrist einkum af innflutningi á eldsneyti og smurolíum og fjárfestingavörum.
Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.435,6 milljarðar króna og dróst saman um 28,6 milljarða, miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 2% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var mestur í innflutningi á hrá- og rekstarvörum og fjárfestingavörum. Mest var aukning í innflutningi á eldsneyti og smurolíum.
Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 185,4 og var gengið 1,6% sterkara frá tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 1,2% sterkara í september 2026 (180,5) samanborið við september 2025 (182,7).
Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir september og gætu niðurstöður breyst.