Fluttar voru út vörur fyrir 71 milljarð króna fob í maí 2026 og inn fyrir 127,6 milljarða cif (121,2 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í maí, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 56,6 milljarða króna.
Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 63,1 milljarð króna í maí 2025 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í maí 2026 var því 6,5 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 426 milljarða króna sem er 79,6 milljörðum króna hagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.
Verðmæti vöruútflutnings dróst saman um 6% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í maí 2026 var 8,8 milljörðum króna minna (11%) en í maí 2025, fór úr 79,8 milljörðum króna í 71 milljarð, aðallega vegna samdráttar í útflutningi á iðnaðarvörum.
Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 906,8 milljarðar króna og dróst saman um 55,6 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 6% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 48% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra dróst saman um 15% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 41% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 7% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.
Verðmæti vöruinnflutnings dróst saman um 9% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 127,6 milljörðum króna í maí 2026 samanborið við 142,9 milljarða í maí 2025 og dróst því saman um 15,3 milljarða króna eða um 11%. Samdráttur var aðallega vegna minni innflutnings á fjárfestingavörum en einnig dróust hrá- og rekstrarvörur og flutningatæki saman. Á móti kom aukning í innflutningi á mat- og drykkjarvörum.
Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.332,8 milljarðar króna og dróst saman um 135,2 milljarða, miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 9% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var mestur í innflutningi á fjárfestingavörum, hrá- og rekstrarvörum og eldsneyti og smurolíum en einnig var samdráttur í innflutningi á flutningatækjum. Mest var aukning í innflutningi á neysluvörum.
Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 185,1 og var gengið 4% sterkara frá tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 1,5% sterkara í maí 2026 (185,6) samanborið við maí 2025 (188,4).
Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir maí og gætu niðurstöður breyst.