Fluttar voru út vörur fyrir 86,5 milljarða króna fob í júlí 2026 og inn fyrir 127,1 milljarð cif (120 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í júlí, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 40,6 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 44 milljarða króna í júlí 2025 á gengi hvors árs fyrir sig.
Vöruskiptajöfnuðurinn í júlí 2026 var því 3,5 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 441,9 milljarða króna sem er 63 milljörðum króna hagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.
Verðmæti vöruútflutnings í júlí dróst saman um 3,2 milljarða á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í júlí 2026 var 14 milljörðum króna meira (19%) en í júlí 2025, fór úr 72,5 milljörðum króna í 86,5 milljarða, aðallega vegna aukningar í útflutningi á iðnaðarvörum, sérstaklega áli.
Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 949,5 milljarðar króna og dróst saman um 3,2 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða nær óbreytt á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 49% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra dróst saman um 7% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 40% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 8% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.
Verðmæti vöruinnflutnings dróst saman um 5% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 127,1 milljarði króna í júlí 2026 samanborið við 116,5 milljarða í júlí 2025 og jókst því um 10,6 milljarða króna eða um 9%. Aukning var aðallega vegna aukins innflutnings á fjárfestingavörum.
Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.391,4 milljarðar króna og dróst saman um 66,2 milljarða, miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 5% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var mestur í innflutningi á hrá- og rekstarvörum og fjárfestingavörum en einnig var samdráttur í innflutningi á flutningatækjum og eldsneyti og smurolíum. Mest var aukning í innflutningi á neysluvörum og mat- og drykkjarvörum.
Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 185,6 og var gengið 2,8% sterkara frá tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 2,1% veikara í júlí 2026 (185,8) samanborið við júlí 2025 (181,9).
Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir júlí og gætu niðurstöður breyst.
Samhliða bráðabirgðatölum fyrir júlí eru birtar lokatölur fyrir júní. Frávik frá bráðabirgðatölum í júní má að mestu rekja til aukins innflutnings á eldsneyti.