FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 19. MAÍ 2026

Verðmæti útflutnings árið 2025 nam 923,2 milljörðum króna á FOB verði samanborið við 932,1 milljarð króna árið áður og dróst því saman um 1,0% á milli ára. Á sama tíma jókst verðmæti innflutnings um 3,9% og nam 1.408,9 milljörðum króna árið 2025. Halli á vöruviðskiptum nam því 485,7 milljörðum króna árið 2025 samanborið við 424,5 milljarða árið áður. Vöruskiptahallinn var því 61,2 milljörðum króna meiri árið 2025 en árið áður, reiknað á gengi hvors árs.

Verðmæti útflutnings dróst saman um 9,0 milljarða króna á milli ára
Verðmæti vöruútflutnings árið 2025 var 9,0 milljörðum króna minna en árið 2024 á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 51,7% alls útflutningsverðmætis og dróst verðmæti þeirra saman um 1,9% samanborið við árið 2024. Útflutningur á áli og álafurðum átti stærsta hlutdeild í útflutningi iðnaðarvara árið 2025 eða 34,5% af heildarútflutningsverðmæti. Verðmæti útfluttra sjávarafurða var 38,9% af heildarútflutningsverðmæti og jókst um 3,6% frá fyrra ári. Mesta hlutdeild í útflutningsverðmæti sjávarafurða árið 2025 áttu ferskur fiskur (27,2%) og fryst flök (29,4%). Stærstu viðskiptalönd í vöruútflutningi árið 2025 voru Holland, Bretland og Bandaríkin.

Verðmæti innflutnings 52,2 milljörðum meira en á síðasta ári
Árið 2025 var verðmæti vöruinnflutnings 52,2 milljörðum króna meira en árið 2024 á gengi hvors árs. Verðmæti innflutnings fjárfestingavara jókst um 19,4% á milli ára, einkum vegna aukningar í innfluttum fjárfestingarvörum tengdum starfsemi gagnavera. Verðmæti innfluttra flutningatækja jókst um 6,5%, þar af nær tvöfaldaðist verðmæti fólksbíla¬innflutnings þar sem aukningin nam 85,2%. Á sama tíma dróst verðmæti innflutnings eldsneytis og smurolía saman um 18,1% á milli ára. Stærstur hluti innflutningsverðmætis árið 2025 var vegna fjárfestingarvara, eða 30,4%, og hrá- og rekstrarvara, 25,8%. Hlutur neysluvara nam 13,2% og hlutur flutningatækja nam 12,8% af heildarinnflutningi % . Eldsneyti og smurolíur námu 9,1% og hlutur matar- og drykkjarvara nam 8,7% af heildarinnflutningi. Stærstu viðskiptalöndin í innflutningi voru Kína, Noregur og Þýskaland.

Útflutningur Íslands til Bandaríkjanna dróst saman árið 2025
Útflutningur Íslands til Bandaríkjanna nam 85,5 milljörðum króna á FOB-verði árið 2025, sem jafngildir um 10% samdrætti frá árinu 2024. Til samanburðar nam útflutningurinn um 85,7 milljörðum árið 2023. Samdráttinn árið 2025 má rekja til samdráttar í útflutningi sjávarafurða og iðnaðarvara, hvort sem litið er til verðmætis eða magns útflutnings.

Útflutningsverðmæti sjávarafurða dróst saman um 11,7% á milli ára. Þar munar mest um minni útflutning á ferskum fiski, þar sem samdráttur útflutningsverðmætis nam 12,8%, auk þess sem útflutningur á lýsi minnkaði um 48,5%. Samdráttur í útflutningsverðmæti iðnaðarvara reyndist vera 16,3% á milli ára. Mest dró úr verðmæti útflutnings annarra iðnaðarvara, eða um 31,2%, auk þess sem útflutningsverðmæti kísiljárns minnkaði um 25,7%. Á móti þessum samdrætti jókst útflutningur á eldisfiski, hvort sem litið er til verðmætis eða magns. Útflutningsverðmæti eldisfisks jókst um 24,9% á milli ára.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.