Verðmæti þjónustuútflutnings á þriðja ársfjórðungi 2026 er áætlað 366,5 milljarðar króna en verðmæti þjónustuinnflutnings 207,4 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir að þjónustujöfnuður hafi verið jákvæður um 159,1 milljarð króna en hann var jákvæður um 149,3 milljarða á sama tíma árið áður. Á tólf mánaða tímabili, frá október 2025 til september 2026, var þjónustujöfnuður jákvæður um 312,4 milljarða króna en var jákvæður um 283,3 milljarða tólf mánuðina þar á undan.
Verðmæti þjónustuútflutnings jókst um 6% á þriðja ársfjórðungi
Verðmæti þjónustuútflutnings á þriðja ársfjórðungi jókst um 21,2 milljarða króna eða um 6%, frá þriðja ársfjórðungi 2025 á gengi hvors árs. Útflutningstekjur af ferðalögum jukust um 9,8 milljarða samanborið við þriðja ársfjórðung 2025 eða um 5%. Tekjur af samgöngum og flutningum jukust einnig, um 2% eða um 1,5 milljarða frá þriðja ársfjórðungi 2025. Útflutningstekjur af fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónustu héldu áfram að vaxa ört en útflutningur þeirrar þjónustu jókst um 9,9 milljarða eða 37% samanborið við þriðja ársfjórðung 2025. Áfram má rekja þennan mikla vöxt að stærstum hluta til aukinna umsvifa fyrirtækja tengd starfsemi gagnavera.
Verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá október 2025 til september 2026, var 1.085,9 milljarðar króna og jókst um 5% miðað við tólf mánuðina þar á undan á gengi hvors árs. Vöxtur í útflutningstekjum af ferðalögum á sama tímabili nam 1%. Útflutningstekjur af samgöngum og flutningum drógust hins vegar saman um 3%. Stærstan hluta í vexti útflutningstekna af þjónustu á umræddu tímabili má hins vegar rekja til hins mikla vaxtar af áður nefndri fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónustu en útflutningstekjur hennar jukust um 52 milljarða ef miðað er við tólf mánaða tímabilið þar á undan.
Verðmæti þjónustuinnflutnings jókst um 6% á þriðja ársfjórðungi
Verðmæti þjónustuinnflutnings á þriðja ársfjórðungi jókst um 11,4 milljarða króna eða um 6%, ef miðað er við þriðja ársfjórðung 2025 á gengi hvors árs. Útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis jukust um 3% samanborið við þriðja ársfjórðung 2025. Útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu drógust hins vegar töluvert saman á milli ára, eða um 21%, en útgjöld vegna samgangna og flutninga jukust hins vegar á sama tímabili um 8%.
Verðmæti þjónustuinnflutnings á tólf mánaða tímabili, frá október 2025 til september 2026, var 773,5 milljarðar króna og jókst um 3% miðað við sama tímabil árið áður á gengi hvors árs. Útgjöld Íslendinga á ferðalögum erlendis jukust um 5% á umræddu tímabili. Útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu drógust nokkuð saman, eða um 21%, en útgjöld vegna samgangna og flutninga jukust hins vegar um 4%.
Vöru- og þjónustujöfnuður jákvæður um 39,7 milljarða á þriðja ársfjórðungi Vöruútflutningur í greiðslujöfnuði er áætlaður 253,5 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi 2026 en vöruinnflutningur 372,8 milljarðar. Vöruviðskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði er því áætlaður neikvæður um 119,3 milljarða króna.
Á þriðja ársfjórðungi 2026 er því áætlað verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 620 milljarðar króna samanborið við 565 milljarða á þriðja ársfjórðungi árið áður á gengi hvors árs. Á sama tíma er áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 580,2 milljarðar króna samanborið við 517,3 milljarða á sama tíma árið áður. Vöru- og þjónustujöfnuður er því áætlaður jákvæður um 39,7 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi 2026 en var jákvæður um 47,7 milljarða á sama tíma 2025.
Á tólf mánaða tímabili, frá október 2025 til september 2026, var vöru- og þjónustujöfnuður áætlaður neikvæður um 58,7 milljarða króna en hann var neikvæður um 128,6 milljarða á tólf mánaða tímabilinu þar á undan.
Mánaðarlegur vöru- og þjónustujöfnuður
Samhliða ársfjórðungsútgáfu á vöruskipta- og þjónustujöfnuði uppfærir Hagstofan nú gögn um mánaðarlegan vöru- og þjónustujöfnuð á þriðja ársfjórðungi 2026. Í september 2026 er áætlað verðmæti útflutnings vegna vöru- og þjónustuviðskipta 192,1 milljarður króna en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 193,5, milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir því að vöru- og þjónustujöfnuður í september 2026 hafi verið neikvæður um 1,4 milljarð króna.
Starfsemi tengd gagnaverum í gögnum um utanríkisverslun
Undanfarin misseri hefur innflutningur fjárfestingarvara í tengslum við starfsemi gagnavera og sérhæfðra skýjaþjónustuaðila verið umfangsmikill. Með sérhæfðum skýjaþjónustuaðilum er átt við fyrirtæki sem eiga og reka öflugan tölvubúnað, einkum fyrir gervigreindarvinnslu, í gagnaverum hér á landi. Samhliða auknum innflutningi hefur þjónustuútflutningur þessara fyrirtækja einnig aukist.
Innflutningur fjárfestingavara vegna starfsemi sérhæfðra skýjaþjónustuaðila tók að aukast verulega á árinu 2024, einkum á síðari hluta ársins. Áætlað er að verðmæti innflutningsins hafi numið um 67 milljörðum króna á árinu 2024. Árið 2025 jókst innflutningurinn enn frekar og er áætlað að verðmæti hans hafi numið um 165 milljörðum króna. Á fyrstu þremur ársfjórðungum ársins 2026 er áætlað að innflutningur fjárfestingarvara vegna þessarar starfsemi hafi numið um 148 milljörðum króna.
Samhliða auknum innflutningi hefur þjónustuútflutningur sérhæfðra skýjaþjónustuaðila einnig vaxið. Áætlað er að verðmæti þjónustuútflutnings þessara fyrirtækja hafi numið um 8 milljörðum króna árið 2024. Árið 2025 jókst útflutningurinn verulega og er áætlað að verðmæti hans hafi numið um 35 milljörðum króna. Á fyrstu þremur ársfjórðungum ársins 2026 er áætlað að þjónustuútflutningurinn hafi numið um 51 milljarði króna.
Talnaefni
Þjónustuviðskipti
Vöru- og þjónustuviðskipti