Flutningar um hafnir á Íslandi námu 7,8 milljónum tonna árið 2025 sem er 4% meira en árið 2024. Umsvifamestu hafnir landsins voru Reykjavík, Reyðarfjörður, Grundartangi og Akureyri. Innflutningur á brennsluolíum til Reykjaneshafnar jókst um 23% árið 2025 miðað við árið á undan.