Landaður fiskafli í september 2026 var 102 þúsund tonn, 23% minni en í september árið á undan. Botnfiskafli var tæp 31 þúsund tonn sem er 1% minni afli en í september 2025. Uppsjávarafli var tæp 70 þúsund tonn, 30% minni afli en ári fyrr.
Á 12 mánaða tímabili, frá október 2025 til september 2026, var landað 997 þúsund tonnum sem er 4% minni afli en á sama tímabili ári fyrr. Uppsjávarafli minnkaði um 5%, botnfiskafli dróst saman um 4% á milli tímabila og samdráttur var einnig í flatfiskafla um 8%.
Tölur um aflaverðmæti hafa nú verið uppfærðar fram til apríl 2026.