Landaður afli í maí 2026 var tæp 62 þúsund tonn, 9% minni en í maí 2025. Botnfiskafli var tæp 40 þúsund tonn sem er 6% minni afli en í maí 2025. Uppsjávarafli, sem líkt og í fyrra var nær eingöngu kolmunni, var tæp 19 þúsund tonn, 16% minni afli en í maí 2025.
Á 12 mánaða tímabili, frá júní 2025 til maí 2026, var landað rúmlega 1.119 þúsund tonnum sem er 17% meiri afli en á sama tímabili ári fyrr. Aukning var í afla uppsjávartegunda um 37% og vegur loðna þungt í þeirri aukningu. Botnfiskafli dróst hins vegar saman um 6% á milli tímabila og samdráttur var einnig í flatfiskafla um 9%.
Tölur um aflaverðmæti fram til nóvember 2025 eru nú einnig birtar á vef Hagstofunnar.