FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. JÚLÍ 2026

Landaður afli í júní 2026 var rúmlega 32 þúsund tonn sem er 29% minni afli en í júní 2025. Minni uppsjávarafli skýrir samdrátt í aflamagni en engu var landað af kolmunna og makríl í júní til samanburðar við rúm 14 þúsund tonn í júní 2025. Botnfiskafli nam tæplega 30 þúsund tonnum í júní sem er 7% meiri afli en í sama mánuði 2025.

Á 12 mánaða tímabilinu, frá júlí 2025 til júní 2026, var landað rúmlega 1.106 þúsund tonnum sem er 13% meira en á sama tímabili ári fyrr. Aukning var í afla uppsjávartegunda á tímabilinu um 30% og vegur loðna þungt í þeirri aukningu. Botnfiskafli dróst hins vegar saman um 6% á milli tímabila og samdráttur var einnig í flatfiskafla, um 9%.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.