Landaður fiskafli í ágúst 2026 var 71 þúsund tonn, 33% minni en í ágúst árið á undan. Botnfiskafli var tæp 33 þúsund tonn sem er 9% meiri afli en í ágúst 2025. Uppsjávarafli var rúm 35 þúsund tonn, 52% minni afli en ári fyrr.
Á 12 mánaða tímabili, frá september 2025 til ágúst 2026, var landað 1.027 þúsund tonnum sem er 2% meiri afli en á sama tímabili ári fyrr. Uppsjávarafli jókst um 7%, en botnfiskafli dróst hins vegar saman um 5% á milli tímabila og samdráttur var einnig í flatfiskafla um 10%.