Flestir þeirra sem brautskráðust með stúdentspróf árið 2025 útskrifuðust af öðrum námsbrautum en hefðbundnum skilgreindum námsbrautum, þá óskilgreindum eða opnum brautum. Þetta er fyrsta árið þar sem náttúrufræðibraut var ekki fjölmennasta brautin meðal brautskráðra stúdenta í nær áratug, eða frá árinu 2016. Nærri þriðjungur brautskráðra stúdenta, eða 939 nemendur, útskrifuðust af öðrum námsbrautum skólaárið 2024-2025. Þá brautskráðist um fimmtungur, eða 700 nemendur, af náttúrufræðibrautum og 522 nemendur af félagsfræðibrautum.
Stúdentum sem brautskrást af náttúrufræðibrautum og félagsfræðibrautum hefur farið töluvert fækkandi síðasta áratug á meðan sífellt fleiri útskrifast af öðrum eða opnum brautum. Náttúrufræðibrautir, félagsfræðibrautir og aðrar brautir hafa verið fjölmennustu námsleiðir stúdenta síðasta áratug. Á grafinu hér fyrir neðan má sjá þróun brautskráninga stúdenta af þeim námsleiðum síðasta áratug.
Fjöldi stúdenta sem útskrifast af öðrum brautum en hefðbundum skilgreindum námsbrautum hefur farið stöðugt fjölgandi á síðustu tíu árum. Aðeins 73 nemendur brautskráðust af námsbrautum skilgreindum sem „Annað“ skólaárið 2015-2016. Fjöldinn hefur síðast margfaldast og hafa þeir stúdentar verið yfir átta hundruð talsins á ári frá skólaárinu 2020-2021.
Á heildina litið brautskráðust 3.332 nemendur með stúdentspróf skólaárið 2024-2025, þar af 1.887 konur og 1.445 karlar, og er fjöldinn í takt við síðustu ár. Þá útskrifuðust 288 nemendur með stúdentspróf af viðskipta- og hagfræðibrautum, 230 af listabrautum, 86 af málabrautum og 80 af upplýsinga- og tæknibrautum. Eftirstandandi nemendur brautskráðust úr viðbótarnámi til stúdentsprófs, 457 nemendur, og alþjóðlegri braut eða International Baccalaureate, 30 nemendur.
Flestir brautskráðir stúdentar voru 19 ára við útskrift meðan þeim sem útskrifast tvítugir fer enn fækkandi milli ára. Aldursreikningurinn er miðað við aldur nemanda við áramótin eftir útskrift.