FRÉTT MANNFJÖLDI 13. NÓVEMBER 2026

Í lok þriðja ársfjórðungs 2026 bjuggu 397.710 manns á Íslandi, 203.720 karlar, 193.750 konur og kynsegin/annað voru 230. Landsmönnum fjölgaði um 1.210 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 253.680 manns en 144.030 á landsbyggðinni. Erlendir ríkisborgarar voru 71.490 eða 18,0% af heildarmannfjöldanum.

Á þriðja ársfjórðungi 2026 fæddust 1.300 börn, en 650 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 560 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 20 umfram brottflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 550 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.