FRÉTT MANNFJÖLDI 22. DESEMBER 2008

Undanfarin fjögur ár hefur fólksfjölgun verið óvenju mikil hér á landi. Samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár voru landsmenn 319.756 hinn 1. desember síðastliðinn samanborið við 312.872 ári áður. Þetta jafngildir því að íbúum hafi fjölgað um 2,2% á einu ári. Það sem af er öldinni varð fólksfjölgun mest á árinu 2006 en það ár fjölgaði landsmönnum um 2,6%. Hvort sem litið er til annarra þjóða eða til fyrri tímabila hér á landi er þetta afar mikil fólksfjölgun. Jafnmikil fólksfjölgun hefur ekki orðið hér á landi síðan um miðbik sjöunda áratugs 20. aldar og í engu öðru Evrópulandi er fólksfjölgun jafnmikil og hér. 

Fram undir 1980 var mikil fólksfjölgun hérlendis nær eingöngu rakin til mikillar náttúrulegrar fjölgunar (fjölda fæddra umfram dána). Lífslíkur jukust alla 20. öldina og í samanburði við önnur Evrópulönd hefur fæðingartíðni hér á landi verið há. Við upphaf sjöunda áratugarins gat hver kona vænst þess að eignast fjögur börn á lífsleiðinni. Í fáum ríkjum á Vesturlöndum varð fæðingartíðni jafn há á síðari hluta 20. aldar og hér.

Þótt fæðingartíðni hafi lækkað hér á landi er hún enn há í evrópsku samhengi. Konur hér á landi eignast nú rúmlega tvö börn um ævina. Náttúruleg fólksfjölgun (fæddir umfram dána) var mest hér á landi frá lokum seinni heimsstyrjaldar til miðs sjöunda áratugarins. Allan þann tíma var flutningsjöfnuður (aðfluttir umfram brottflutta) lágur og allmörg ár þessa tímabils voru þeir sem fluttust af landi brott fleiri en þeir sem fluttu til landsins. Þótt náttúruleg fólksfjölgun eigi enn talsverðan þátt í fjölgun íbúa hér á landi verður fólksfjölgun undanfarin ár öðru fremur rakin til mikils aðstreymis fólks frá útlöndum. Frá 1. desember í fyrra til 1. desember í ár var fjöldi aðfluttra umfram brottflutta rúmlega 4.000. Á sama tíma voru fæddir umfram dána rúmlega 2.800 talsins.

Ef litið er til flutninga til og frá landinu einstaka mánuði ársins 2008 sést að framan af árinu var mánaðurlegur fjöldi aðfluttra einstaklinga fleiri en nokkurt annað ár. Þetta á þó fyrst og fremst við um karla. Frá febrúar til maí á þessu ári var fluttust mánaðarlega um 600 fleiri karlar en konur til landsins. Talsvert dró úr flutningum til landsins um mitt árið og í júlí, ágúst og í nóvember fluttust fleiri karlar frá landinu en til þess. Eins og vænta mátti var brottflutningur mestur í nóvember en þann mánuð voru brottfluttir karlar 645 fleiri en aðfluttir.  Litlar breytingar hafa orðið á fjölda kvenna sem flytjast til landsins og nú þegar flutningsjöfnuður meðal karla er neikvæður er flutningsjöfnuður meðal kvenna álíka hár og meðaltal undangenginna ára.   

Talnaefni
     Sveitarfélög
     Byggðakjarnar
     Ríkisfang og fæðingarland

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.