FRÉTT LÍFSKJÖR 27. NÓVEMBER 2026

Hlutfall einstaklinga á aldrinum 18–24 ára sem bjuggu í foreldrahúsum var 72,4% árið 2026, eða um 26.000 einstaklingar. Meðal 25–29 ára var hlutfallið 17,6%, eða um 4.900 einstaklingar. Þeir sem búa á sama heimili og annað hvort eða bæði foreldra þeirra teljast búa í foreldrahúsum.

Á árunum 2021–2026 var hlutfall 18–24 ára í foreldrahúsum á bilinu 63,9% til 72,4%, lægst árið 2022 og hæst árið 2026. Breytingar milli samliggjandi ára voru allar innan skekkjumarka. Hlutfallið var þó hærra árið 2026 en árið 2022.

Á sama tímabili var hlutfall 25–29 ára í foreldrahúsum á bilinu 17,6% til 25,8%, lægst árið 2026 og hæst árið 2022. Breytingar milli samliggjandi ára voru einnig innan skekkjumarka. Hlutfallið var þó lægra árið 2026 en árin 2021 og 2022.

Karlar 18–24 ára oftar í foreldrahúsum en konur árin 2021–2023
Árið 2026 bjuggu 74,1% karla og 70,6% kvenna á aldrinum 18–24 ára í foreldrahúsum. Hlutfallið var hærra meðal karla en kvenna árin 2021–2023 en ekki árin 2024–2025.

Árið 2026 bjuggu 20,3% karla og 14,6% kvenna á aldrinum 25–29 ára í foreldrahúsum. Aðeins árið 2023 var hlutfallið hærra meðal karla en kvenna í þeim aldurshópi.

Hlutfall 18–29 ára í foreldrahúsum hærra á höfuðborgarsvæðinu
Árið 2026 bjuggu 79,0% einstaklinga á aldrinum 18–24 ára á höfuðborgarsvæðinu í foreldrahúsum samanborið við 59,2% einstaklinga á sama aldri utan höfuðborgarsvæðisins. Hlutfallið var hærra á höfuðborgarsvæðinu en utan þess bæði meðal karla og kvenna.

Sama ár bjuggu 20,7% einstaklinga á aldrinum 25–29 ára á höfuðborgarsvæðinu í foreldrahúsum samanborið við 11,5% einstaklinga á sama aldri utan höfuðborgarsvæðisins. Hlutfallið var hærra á höfuðborgarsvæðinu en utan þess meðal karla á þeim aldri en ekki meðal kvenna.

Hlutfall 18–29 ára í foreldrahúsum lægra en í Evrópusambandinu
Árið 2025 var hlutfall 18–24 ára í foreldrahúsum 70,5% á Íslandi en meðaltalið í ríkjum Evrópusambandsins var 80,0%. Í Evrópu var hlutfallið hæst í Króatíu, eða 97,0%. Á hinum Norðurlöndunum var það á bilinu 38,0% til 55,3%, lægst í Finnlandi og hæst í Svíþjóð. Nýjustu tölur fyrir evrópskan samanburð eru fyrir árið 2025 en nýjustu íslensku tölurnar eru fyrir árið 2026.

Í aldurshópnum 25–29 ára var hlutfallið 22,8% á Íslandi árið 2025 en meðaltalið í ríkjum Evrópusambandsins var 41,8%. Í Evrópu var hlutfallið hæst í Króatíu, eða 76,8%. Á hinum Norðurlöndunum var það á bilinu 5,4% til 10,8%, lægst í Danmörku og hæst í Noregi.

Hugtakaskýringar
Aldur miðast við viðtalsdag.

Til sama heimilis teljast allir þeir sem hafa sameiginlegan fjárhag, þ.e. afla tekna til heimilisins og deila útgjöldum, eða eru á framfæri annarra heimilismanna, til dæmis börn. Sambýlingar sem deila aðeins húsnæðiskostnaði teljast þannig hver til síns heimilis. Þeir sem búa á stofnunum, búsetukjörnum eða í öðrum sértækum búsetuúrræðum teljast ekki til einkaheimila.

Búseta byggist á flokkun Eurostat á sveitarfélögum eftir þéttbýlisstigi frá árinu 2018. Til höfuðborgarsvæðisins teljast sveitarfélög sem eru mikið þéttbýli samkvæmt þeirri flokkun, það er öll sveitarfélög svæðisins nema Kjósarhreppur. Önnur sveitarfélög teljast utan höfuðborgarsvæðisins. Hlutfall einstaklinga í foreldrahúsum segir ekki til um hvort þeir hafi aldrei flutt að heiman, hafi flutt aftur heim eða hvort foreldri hafi flutt inn til þeirra.

Um tölurnar
Niðurstöðurnar byggja á lífskjararannsókn Hagstofunnar. Rannsóknin er hluti af EU-SILC, samræmdri lífskjararannsókn Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Tilgangurinn er að afla og miðla greinargóðum og samanburðarhæfum upplýsingum um tekjur og lífskjör almennings.

Úrtak lífskjararannsóknarinnar er einfalt slembiúrtak einstaklinga, og þar með heimilið sem þeir tilheyra, sem dregið er úr mannfjöldagrunni Hagstofunnar 1. janúar ár hvert. Í úrtaksrammanum eru allir íslenskir og erlendir ríkisborgarar, 16 ára og eldri, sem metnir eru í fastri búsetu á landinu. Sá sem lendir í úrtakinu veitir upplýsingar um sínar eigin aðstæður, aðstæður annarra heimilismanna og um heimilið. Upplýsingar um tekjur eru fengnar úr skattframtölum og öðrum stjórnsýslugögnum og miðast þær við árið á undan. Niðurstöður ársins 2026 byggjast þannig á tekjum ársins 2025.

Undanfarin ár hefur Hagstofan unnið að umbótum í vinnslu talna úr lífskjararannsókninni. Tölur áranna 2021–2023 hafa verið endurskoðaðar með nýjum vogum og endurbættri vinnslu upplýsinga um heimili og heimilismenn. Það leiðir til þess að brot er í tímaröðinni á milli áranna 2020 og 2021. Nánar er fjallað um endurskoðunina í Hagtíðindum, „Greinargerð um endurskoðun lífskjararannsóknar Hagstofu Íslands 2021–2026“, sem komu út 20. nóvember 2026.

Við túlkun á niðurstöðum ber að hafa í huga að um úrtaksrannsókn er að ræða og því er gert ráð fyrir óvissu. Með því að hafa öryggisbil til hliðsjónar er hægt að leggja mat á hversu nákvæmlega úrtaksgildið segir til um hið raunverulega gildi í þýðinu. Öryggisbilin má finna í samsvarandi töflum á vef Hagstofunnar. Þegar fjallað er um mun á milli mælinga þá er það til marks um tölfræðilega marktækan mun. Þegar munurinn er tölfræðilega ómarktækur er ekki fjallað um mun.

Birtingin er hluti af verkefninu Félagsvísar sem Hagstofa Íslands vinnur í samstarfi við félags- og húsnæðismálaráðuneytið.

Greinargerð um endurskoðun lífskjararannsóknar Hagstofu Íslands 2021-2026 - Hagtíðindi

Lýsigögn

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.