Staðgreiðsluskyld launasumma í mars 2026 hækkaði um 5,0% á milli ára. Launasumma í mars var um 181,1 milljarður króna. Fjöldi starfandi einstaklinga var um 206.500 og fjöldi launagreiðanda um 21.800. Greiðslur eru ekki verðlagsleiðréttar.
Athygli er vakin á því að um er að ræða bráðabirgðatölur þar sem mánaðarlegar uppfærslur á staðgreiðsluskrá ná jafnan nokkra mánuði aftur í tímann. Jafnframt eru aðferðir við framleiðslu hagtalna úr staðgreiðslugögnum í stöðugri endurskoðun og gæti bætt verklag haft minniháttar áhrif á niðurstöður.