Staðgreiðsluskyld launasumma í febrúar 2026 hækkaði um 8,0% á milli ára. Launasumma í febrúar var um 184,4 milljarðar króna. Fjöldi einstaklinga var um 206.000 og fjöldi launagreiðanda um 21.700. Greiðslur eru ekki verðlagsleiðréttar.
Athygli er vakin á því að um er að ræða bráðabirgðatölur þar sem mánaðarlegar uppfærslur á staðgreiðsluskrá ná jafnan nokkra mánuði aftur í tímann. Jafnframt eru aðferðir við framleiðslu hagtalna úr staðgreiðslugögnum í stöðugri endurskoðun og gæti bætt verklag haft minniháttar áhrif á niðurstöður.