FRÉTT FYRIRTÆKI 20. MARS 2018

Velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, fyrir utan lyfjaframleiðslu og landbúnað, var 737 milljarðar króna í nóvember og desember 2017 sem er 9,2% hækkun miðað við sama tímabil árið 2016. Virðisaukaskattskyld velta í þessum greinum var 4.145 milljarðar árið 2017 eða 4,2% hærri en 2016.

Tafla 1: Virðisaukaskattsvelta (milljarðar króna)
  Nóv.-des. 2016 Nóv.-des. 2017 Breyting, % 2016 2017 Breyting, %
Alls, án lyfjaframleiðslu, landbúnaðar og skógræktar¹ 675 737 9,2 3.979 4.145 4,2
A-03/C-102 Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða 49 54 11,2 348 318 -8,6
C-24 Framleiðsla málma 32 38 18,7 198 222 12,1
C Framleiðsla; án fiskvinnslu, lyfjaframleiðslu og framleiðslu málma 71 80 12,9 392 413 5,3
D/E Veitustarfsemi 30 31 5,0 162 170 4,5
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu 57 62 8,6 281 323 14,8
G-45 Sala og viðhald vélknúinna ökutækja 23 28 18,0 161 174 8,4
G-46171/G-46172/G-46381 Heild- og umboðsverslun með fisk 30 32 6,9 227 193 -15,0
G-4671 Olíuverslun 16 19 14,6 110 124 12,4
G-46 Önnur heild- og umboðsverslun 63 63 -0,1 341 344 0,8
G-47 Smásala 82 88 7,3 428 453 6,0
H Flutningar og geymsla 61 70 16,2 429 454 5,9
I Rekstur gististaða og veitingarekstur 27 27 1,7 173 189 9,5
J Upplýsingar og fjarskipti 36 39 7,3 195 197 1,4
N-7711 Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum 7 8 17,2 45 51 12,5
N-79 Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur 13 14 3,1 97 108 11,5
Erlendir aðilar sem selja rafræna þjónustu 1 2 19,2 4 7 93,2
Aðrar atvinnugreinar 76 82 7,6 387 404 4,4
¹Virðisaukaskattskyld velta er birt tímabundið án veltu í lyfjaframleiðslu þar sem verið er að yfirfara og sannreyna gögn í þeirri atvinnugrein. Margir bændur skila virðisaukaskattskýrlsu hálfsárslega og hafa lengri skilafrest en aðrir. Því eru ekki komnar áreiðanlegar tölur um veltu í landbúnaði og skógrækt seinni hluta árs 2017.

Velta eftir virðisaukaskattsþrepum
Hærra þrep virðisaukaskatts, eða almennt þrep, er í dag 24%. Í þessu þrepi eru allar tegundir vöru og þjónustu sem ekki eru flokkaðar í öðrum þrepum samkvæmt lögum um virðisaukaskatt (nr. 50/1988).

Lægra þrep virðisaukaskatts er í dag 11% skv. 14. grein laga um virðisaukaskatt. Í þessu þrepi eru m.a. bækur, tímarit, hitaveita, rafmagn til húshitunar, matvara, þjónusta veitingahúsa, gistiþjónusta, farþegaflutningar innanlands (aðrir en áætlunarflutningar) og þjónusta ferðaskrifstofa. Áfengi er í lægra þrepi síðan 1. janúar 2016 en var áður í hærra þrepi.

Velta undanskilin virðisaukaskatti skv. 12. grein laga um virðisaukaskatt: Ekki þarf að greiða virðisaukaskatt af þessari veltu, en þó er skylt að skila virðisaukaskattskýrslum og hægt er að fá endurgreiddan þann virðisaukaskatt sem hefur verið greiddur til að afla tekna. Útflutningur á vöru og þjónustu er undanskilinn virðisaukaskatti. Sem dæmi um útflutta þjónustu má nefna millilandaflug og -siglingar; útflutning hugbúnaðarþjónustu; og utanlandsferðir sem íslenskar ferðaskrifstofur selja. Samningsbundnar greiðslur úr ríkissjóði vegna mjólkurframleiðslu og sauðfjárframleiðslu eru einnig undanskildar virðisaukaskatti.

Þjónusta undanskilin virðisaukaskatti: Ýmiss konar þjónusta er að öllu leyti undanskilin virðisaukaskatti skv. 2. grein laga um virðisaukaskatt. Veltu í þess konar þjónustu á ekki að telja með í virðisaukaskattskýrslum og ekki er hægt að fá endurgreiddan þann virðisaukaskatt sem rekstraraðilar hafa greitt í tengslum við þessa þjónustu. Eðli máls samkvæmt er þjónusta af þessu tagi ekki talin með í hagtölum um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum. Sem dæmi um þjónustu sem er undanþegin virðisaukaskatti má nefna almenningssamgöngur, aðra áætlunarflutninga innanlands, læknisþjónustu, íþróttastarfsemi, happdrætti og fasteignasölu.
Frekari upplýsingar um virðisaukaskatt má finna á heimasíðu Ríkisskattstjóra

Tafla 2: Velta skv. virðisaukaskattskýrslum árið 2017, eftir virðisaukaskattþrepum (milljarðar króna)
  Velta undanþegin vsk Lægra vsk-þrep Hærra vsk-þrep Alls
Alls, án lyfjaframleiðslu landbúnaðar og skógrækt¹ 1.233 (30%) 895 (22%) 2.017 (49%) 4.145
A-03/C-102 Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða 215 (67%) 89 (28%) 15 (5%) 318
C-24 Framleiðsla málma 221 (99%) 0 (0%) 1 (1%) 222
C Framleiðsla, án fiskvinnslu (C-102), lyfjaframleiðslu (C-21) og framleiðslu málma (C-24) 101 (25%) 136 (33%) 176 (43%) 413
D/E Veitustarfsemi 7 (4%) 25 (15%) 138 (81%) 170
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu 5 (1%) 1 (0%) 317 (98%) 323
G-45 Sala og viðhald vélknúinna ökutækja 8 (5%) 0 (0%) 166 (95%) 174
G-46171/G-46172/G-46381 Heild- og umboðsverslun með fisk 145 (75%) 39 (20%) 9 (5%) 193
G-4671 Olíuverslun 29 (24%) 6 (5%) 88 (71%) 124
G-46 Önnur heild- og umboðsverslun 28 (8%) 89 (26%) 227 (66%) 344
G-47 Smásala 20 (4%) 190 (42%) 244 (54%) 453
H Flutningar og geymsla 353 (78%) 25 (5%) 77 (17%) 454
I Rekstur gististaða og veitingarekstur 5 (3%) 177 (93%) 7 (4%) 189
J Upplýsingar og fjarskipti 41 (21%) 16 (8%) 141 (71%) 197
N-7711 Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum 1 (2%) 0 (1%) 50 (98%) 51
N-79 Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur 15 (14%) 86 (80%) 7 (6%) 108
Erlend fyrirtæki í rafrænni þjónustu 0 (0%) 1 (13%) 6 (86%) 7
Aðrar atvinnugreinar 41 (10%) 15 (4%) 348 (86%) 404
¹Virðisaukaskattskyld velta er birt tímabundið án veltu í lyfjaframleiðslu þar sem verið er að yfirfara og sannreyna gögn í þeirri atvinnugrein. Margir bændur skila virðisaukaskattskýrlsu hálfsárslega og hafa lengri skilafrest en aðrir. Því eru ekki komnar áreiðanlegar tölur um veltu í landbúnaði og skógrækt seinni hluta árs 2017.

Endurskoðun hagtalna
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum eru bráðabirgðatölur. Við birtingu fréttar í janúar var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, í september og október 2017 talin vera 737,7 milljarðar sem var 8,3% hækkun frá sömu mánuðum árið 2016. Nú hafa nýrri tölur borist og velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, á þessu tímabili er talin vera 738,7 milljarðar sem er 8,4% hækkun milli ára. Fjallað er um endurskoðun hagtalna í lýsigögnum og tölulegar upplýsingar um breytingar á þegar birtum hagtölum eru í endurskoðun hagtalna.

Aðrar hagtölur

Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggjast á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.

Talnaefni
   Einkennandi greinar ferðaþjónustu 
   Allar atvinnugreinar 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.