FRÉTT FYRIRTÆKI 23. OKTÓBER 2026

Á þriðja ársfjórðungi 2026 voru 755 nýskráð fyrirtæki í atvinnurekstri, þar af 678 einkahlutafélög. Til samanburðar voru 806 nýskráningar á þriðja ársfjórðungi 2025. Flestar nýskráningar voru í upplýsingum og fjarskiptum eða 110 sem er aukning um 57% miðað við sama tímabil fyrra árs. Í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð voru nýskráningar 101 sem er fækkun um 23% miðað við sama tímabil fyrra árs.

Á þriðja ársfjórðungi 2026 voru 120 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta sem er 3% aukning frá sama tímabil fyrra árs þegar 116 fyrirtæki urðu gjaldþrota. Af þeim 120 fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta voru 46 með virkni á fyrra ári, þ.e. höfðu rekstrartekjur eða greiddu laun árið 2025. Fjöldi gjaldþrota virkra fyrirtækja stóð í stað miðað við sama tímabil fyrra árs.

Hjá þeim virku fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á þriðja fjórðungi 2026 störfuðu að jafnaði 285 starfsmenn árið 2025. Eftir atvinnugreinum störfuðu flestir í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, eða 213 sem er mesti fjöldi á þriðja ársfjórðungi síðan 2009.

Samhliða þessari birtingu hefur verið uppfærð veftafla yfir nýskráningar og gjaldþrot hlutafélaga og einkahlutafélaga eftir sveitarfélögum og landsvæðum.

Um gögnin
Tölur um nýskráningar og gjaldþrot eru teknar saman samkvæmt atvinnugreinaflokkunarkerfinu ÍSAT2008 fyrir atvinnugreinabálka og nokkra atvinnugreinaflokka sem Hagstofa Íslands hefur skilgreint. Tölur um gjaldþrot fyrir síðasta mánuð eru bráðabirgðatölur og eru birtar með fyrirvara um nýjar upplýsingar um gjaldþrotabeiðnir frá dómstólum.

Talnaefni

Lýsigögn

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.