FRÉTT FYRIRTÆKI 13. JANÚAR 2017

Á 12 mánaða tímabili, frá nóvember 2015 til nóvember 2016, voru að jafnaði 16.640 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 681 (4,3%) frá síðustu 12 mánuðum á undan. Frá desember 2015 til nóvember 2016 greiddu launagreiðendur að meðaltali um 179.500 einstaklingum laun sem er aukning um 8.300 (4,9%) samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.

Langflestir launagreiðendur í nóvember 2016 voru með færri en 5 launþega á sínum vegum.

Tafla 1: Fjöldi launagreiðenda og launþega í nóvember 2016  
  Launagreiðendur  
  Fjöldi   % Launþegar
       
Alls¹ 16.498 100 183.300
<5 launþegar 11.868 72 19.000
5-9 launþegar 1.939 12 12.500
10-49 launþegar 2.068 13 40.700
50-100 launþegar 311 2 21.000
>100 launþegar 312 2 104.700
¹ Þar sem sumir launþegar vinna hjá fleiri en einum atvinnurekenda er heildarfjöldi launþega minni en summan af fjölda launþega í einstökum flokkum

Skipt eftir atvinnugreinum hefur launþegum fjölgað mikið á milli ára hjá launagreiðendum í ferðaþjónustu og byggingariðnaði. Launþegum hefur hins vegar fækkað í greinum tengdum sjávarútvegi og í heilbrigðis- og umönnunarþjónustu.

Í nóvember voru 1.546 launagreiðendur og um 25.600 launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu og hafði launþegum fjölgað um 4.600 eða um 22% samanborið við nóvember 2015. Sömuleiðis voru í nóvember 2.413 launagreiðendur og um 11.000 launþegar í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð og hafði launþegum fjölgað um 1.700 eða um 18% á einu ári. Launþegum hefur á sama tíma fjölgað um 10.300 eða um 6%. Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin. 

Tafla 2: Fjöldi laungagreiðenda og launþega í nokkrum atvinnugreinum¹
  Launagreiðendur Launþegar nóvember
  nóv. 2016 2015 2016 Breyting %
           
Allar atvinnugreinar 16.498 173.000 183.300 10.300 6
Viðskiptahagkerfið 12.888 116.900 126.900 10.000 9
Sjávarútvegur 493 9.600 9.300 -300 -3
Framleiðsla án fiskvinnslu 1.023 16.600 17.200 600 4
Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð 2.413 9.300 11.000 1.700 18
Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum 2.296 25.800 27.500 1.700 7
Fjármála- og vátryggingastarfsemi 396 6.200 6.300 100 1
Fræðslustarfsemi og opinber stjórnsýsla 550 41.000 42.400 1.400 3
Heilbrigðis- og umönnunarþjónusta 1.074 16.400 15.700 -600 -4
Einkennandi greinar ferðaþjónustu 1.546 21.000 25.600 4.600 22
Tækni- og hugverkaiðnaður 871 12.500 12.500 100 1
Skapandi greinar 1.504 9.200 9.300 100 1
¹ Nánari lýsing á þessum atvinnugreinaflokkum er að finna í lýsigögnum        


Endurskoðun hagtalna
Tölurnar sem hér um ræðir eru bráðabirgðatölur. Þar sem byggt er á staðgreiðslugögnum getur verið vanmat í nýjustu tölum þegar launagreiðendur skila ekki inn upplýsingum tímalega. Meðal annarra skekkjuvalda má nefna orlofsgreiðslur til fyrrverandi starfsmanna. Þegar nýjar tölur eru birtar verða jafnframt birtar endurskoðaðar tölur fyrir fyrri tímabil. Nánari lýsingu á skekkjuvöldum, áhrifum þeirra og og endurskoðun birtra talna má finna í lýsigögnum

Áður birtar tölur hafa verið endurskoðaðar, þ.e. tekið tillit til nýrra upplýsinga um launagreiðslur og nýjustu upplýsinga um atvinnugreinaflokkun.

Heildarfjöldi launagreiðenda í október 2016 telst nú vera 16.804 og heildarfjöldi launþega 179.700. Fjöldi launþega jókst um 9.300 (5%) frá október 2015 til október 2016.

Í fréttatilkynningu í desember 2016 töldust vera 16.492 launagreiðendur og 179.100 launþegar í október 2016. Fjöldi launþega var þá talinn hafa aukist um 8.900 (5%) frá október 2015 til október 2016.

Aðrar hagtölur
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggja á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.