FRÉTT FYRIRTÆKI 13. DESEMBER 2016

Á 12 mánaða tímabili, frá nóvember 2015 til október 2016, voru að jafnaði 16.559 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 663 (4,2%) frá síðustu 12 mánuðum á undan. Frá nóvember 2015 til október 2016 greiddu launagreiðendur að meðaltali um 178.500 einstaklingum laun sem er aukning um 8.100 (4,7%) samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.

Launagreiðendur með færri en 10 launþega á sínum vegum voru tæplega 14 þúsund í október síðastliðnum. Til samanburðar voru launagreiðendur með 10 eða fleiri launþega ríflega 2.600.

Tafla 1: Fjöldi launagreiðenda og launþega í október 2016  
  Launagreiðendur  
  Fjöldi   % Launþegar
       
Alls¹ 16.492 100,0 179.100
<5 launþegar 11.992 73,0 19.300
5-9 launþegar 1.944 12,0 12.600
10-49 launþegar 1.984 12,0 40.000
50-100 launþegar 286 2,0 19.500
>100 launþegar 299 2,0 99.600
¹ Þar sem sumir launþegar vinna hjá fleiri en einum atvinnurekenda er heildarfjöldi launþega minni en summan af fjölda launþega í einstökum flokkum


Skipt eftir atvinnugreinum hefur launþegum fjölgað mikið á milli ára hjá launagreiðendum í ferðaþjónustu og byggingariðnaði. Launþegum hefur hins vegar fækkað í greinum tengdum sjávarútvegi.

Í október voru 1.583 launagreiðendur og um 24.600 launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu og hafði þeim fjölgað um 3.900 eða um 19% samanborið við október 2015. Launþegum í byggingarstarfsemi hefur á sama tíma fjölgað um 1.600 eða um 17%. Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin.

Tafla 2: Fjöldi laungagreiðenda og launþega í nokkrum atvinnugreinum        
  Fjöldi         
  launagreiðenda Fjöldi launþega október
  okt. 2016 2015 2016 Breyting %
           
Alls 16.492 170.200 179.100 8.900 5,0
Viðskiptahagkerfið 12.878 115.700 124.000 8.300 7,0
Sjávarútvegur 508 9.600 9.000 -600 -6,0
Framleiðsla án fiskvinnslu 1.020 16.700 17.100 500 3,0
Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð 2.408 9.200 10.800 1.600 17,0
Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum 2.277 24.900 26.000 1.100 4,0
Fjármála- og vátryggingastarfsemi 381 6.200 6.200 0 0,0
Fræðslustarfsemi og opinber stjórnsýsla 554 39.100 39.200 100 0,0
Heilbrigðis- og umönnunarþjónusta 1.059 15.100 15.900 800 5,0
Einkennandi greinar ferðaþjónustu 1.583 20.800 24.600 3.900 19,0
Tækni- og hugverkaiðnaður 868 12.200 12.400 100 1,0
Skapandi greinar 1.500 9.000 9.200 200 2,0

 


Endurskoðun hagtalna
Tölurnar sem hér um ræðir eru bráðabirgðatölur. Þar sem byggt er á staðgreiðslugögnum getur verið vanmat í nýjustu tölum þegar launagreiðendur skila ekki inn upplýsingum tímalega. Meðal annarra skekkjuvalda má nefna orlofsgreiðslur til fyrrverandi starfsmanna. Þegar nýjar tölur eru birtar verða jafnframt birtar endurskoðaðar tölur fyrir fyrri tímabil. Nánari lýsingu á skekkjuvöldum, áhrifum þeirra og og endurskoðun birtra talna má finna í lýsigögnum.

Áður birtar tölur hafa verið endurskoðaðar, þ.e. tekið tillit til nýrra upplýsinga um launagreiðslur og nýjustu upplýsinga um atvinnugreinaflokkun.

Heildarfjöldi launagreiðenda í september 2016 telst nú vera 16.820 og heildarfjöldi launþega 182.500. Fjöldi launþega jókst um 7.600 (4%) frá september 2015 til september 2016.

Í fréttatilkynningu í nóvember 2016 töldust vera 16.347 launagreiðendur og 181.200 launþegar í september 2016. Fjöldi launþega var þá talinn hafa aukist um 6.300 (4%) frá september 2015 til september 2016.

Aðrar hagtölur
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggja á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.