Samkvæmt bráðabirgðamati er afkoma hins opinbera á fyrsta ársfjórðungi 2026 áætluð neikvæð um 23,7 milljarða króna, sem jafngildir 1,8% af vergri landsframleiðslu (VLF) tímabilsins. Til samanburðar er áætlað að afkoma hins opinbera hafi verið nálægt jafnvægi á fyrsta ársfjórðungi 2025, þótt heildarafkoma ársins sé metin neikvæð um 120,1 milljarð króna. Talnaefni fyrir 2025 byggir enn á bráðabirgðagögnum og munu niðurstöður því taka breytingum þegar uppgjör liggur fyrir í september næstkomandi.
Athygli er vakin á því að samhliða þessari útgáfu hefur farið fram endurskoðun á talnaefni sem hefur áhrif á skatttekjur ríkissjóðs og þar með afkomu hins opinbera árin 2023-2025. Nánari umfjöllun um þær breytingar er að finna síðar í fréttinni.
Í heild er áætlað að tekjur hins opinbera hafi aukist um 3,8% frá fyrsta ársfjórðungi 2025. Þar af benda bráðabirgðatölur til þess að skatttekjur séu að aukast um 1,9% á tímabilinu á meðan aðrar tekjur hins opinbera aukast um 11,5%. Hærri arðgreiðslur frá fyrirtækjum í eigu ríkissjóðs eru helsta skýring á aukningu í öðrum tekjum hins opinbera.
Áætlað er að heildarútgjöld hafi aukist um 8,3% á fyrsta ársfjórðungi 2026. Þar vegur þyngst að áætluð útgjaldaaukning vegna félagslegra tilfærsla til heimila er 13,0%, vegna vaxtagjalda 20,4% og 8,3% vegna samneyslu.
Vert er að hafa í huga að afmörkun hins opinbera í þjóðhagsreikningum og í talnaefni um fjármál hins opinbera miðast við evrópska þjóðhagsreikningastaðalinn (ESA2010). Með hinu opinbera teljast meðal annars lánasjóðir ríkissjóðs sem hafa veruleg áhrif á vaxtatekjur og gjöld þess. Í greinagerð sem gefin var út 30. nóvember 2020 og er aðgengileg á vef Hagstofunnar er fjallað sérstaklega um aðferðafræðilegan grundvöll geiraflokkunar og úrlausn álitamála er snúa að flokkun fyrirtækja og stofnana í eigu ríkisins.
Skatttekjur ríkissjóðs endurskoðaðar 2023-2025
Samhliða birtingu fjármála hins opinbera fyrir fyrsta ársfjórðung 2026 birtir Hagstofa Íslands niðurstöður endurskoðunar á skatttekjum ríkissjóðs árin 2023 til 2025.
Frá því bráðabirgða tölur fyrir árið 2025 voru birtar 12. mars síðastliðinn hafa Hagstofunni borist uppfærð gögn um þróun tekna af sköttum á vöru og þjónustu fyrir árin 2023-2025. Samkvæmt uppfærðum gögnum er ljóst að skatttekjur höfðu verið ofmetnar fyrir árið 2024 í fyrri útgáfum. Hefur nú verið tekið tillit til þess og tímaröð leiðrétt á grundvelli ítarlegri gagna og viðbótarupplýsinga. Leiðréttingin hefur áhrif á tekjur og þar af leiðandi á afkomu hins opinbera árin 2023 til 2025.
Jafnframt hafa uppfærð gögn um skatttekjur ársins 2025 verið tekin til greina og bráðabirgðatölur endurmetnar í samræmi við það.
Talnaefni
Hið opinbera
Ríkissjóður