Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 1,0% í október samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferðaþjónustu á Íslandi. Alls voru gistinæturnar tæplega 509.000 á landsvísu en til samanburðar voru þær rúmlega 503.000 á sama tíma árið 2025.
Mest jókst fjöldi gistinátta á Suðurlandi eða um rúmlega 9.000 (6,8%). Þá var einnig aukning á Suðurnesjum um 3,6% og Vesturlandi og Vestfjörðum um 3,7%. Aftur á móti fækkaði gistinóttum á Norðurlandi um 6,7% og 3,1% á Austurlandi auk þess sem samdráttur var á höfuðborgarsvæðinu um 1,5%. Á fyrstu tíu mánuðum ársins var samanlagður fjöldi gistinátta 0,3% meiri en á sama tíma árið 2025.
Gistinætur erlendra ferðamanna voru 458.000, eða 90% af gistinóttum hótela, og var það 1,9% fjölgun frá fyrra ári. Flestar erlendar gistinætur tilheyrðu Bandaríkjamönnum eða tæplega 133 þúsund og fækkaði þeim um 3,2% á milli ára. Þá fækkaði einnig gistinóttum Kínverja (45 þúsund) um 8,7% og Þjóðverja (27 þúsund) um 15,3%. Hins vegar fjölgaði gistinóttum Breta (65 þúsund) um 10,5%. Gistinætur Íslendinga á hótelum voru svo tæplega 51.000 sem var 6,2% minna en á sama tíma fyrir ári.
Framboð hótelherbergja jókst um 4,1% á landinu í október og var aukning í öllum landshlutum. Tiltölulega jöfn aukning var á landinu þar sem hlutfallsleg breyting var á bilinu 3,0% á Vesturlandi og Vestfjörðum til 5,0% á Norðurlandi. Á Suðurnesjum var aukningin 4,7% og 4,4% á Suðurlandi. Og á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði herbergjum um 3,9% en 3,1% á Austurlandi. Alls voru 187 hótel starfandi í október 2026 með 12.922 herbergi og var fjöldinn nokkuð meiri en á sama tíma árið 2025 þegar alls voru starfandi 178 hótel. Á höfuðborgarsvæðinu voru rekin 60 hótel með alls 5.771 herbergi og 55 á Suðurlandi með 3.238 herbergi.
Herbergjanýting dróst saman á landinu í heild um 2,4 prósentustig. Mestur var samdrátturinn á Norðurlandi, eða 7,0 prósentustig, en einnig dróst nýtingin saman á höfuðborgarsvæðinu um 4,6 prósentustig. Á Suðurnesjum var lítilsháttar samdráttur um 0,9 prósentustig og 0,3 prósentustig á Vesturlandi og Vestfjörðum. Nýting herbergja batnaði hins vegar á Austurlandi um 2,7 prósentustig og á Suðurlandi um 1,8 prósentustig. Í október var mesta nýtingin á Suðurlandi (78,2%) og því næst á höfuðborgarsvæðinu (76,1%).
Allir gististaðir
Þegar allir skráðir gististaðir (hótel, gistiheimili, tjaldsvæði, orlofshús, o.fl.) eru skoðaðir var áætlaður heildarfjöldi gistinátta í október tæplega 755.000. Þetta var 1,4% aukning miðað við sama tíma árið 2025 en þá var heildarfjöldi gistinátta á öllum gististöðum tæplega 744.000. Meginþorri gistinátta var á hótelum og gistiheimilum eða um 586.000 (tæplega 509.000 á hótelum og rúmlega 77.000 á gistiheimilum) en um 169.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæðum, orlofshúsum, o.s.frv.).
Lýsigögn
Tölur um gistinætur fyrir skráða gististaði eru fengnar úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.
Gögn sem fást frá gististöðum geta innihaldið tölur um fjölda gistinátta af óþekktum þjóðernum og er þeim tölum dreift með hlutfallslegum hætti á þekkt þjóðerni hverju sinni.
Tölur um gistinætur á öðrum gististöðum en hótelum eru bráðabirgðatölur fyrir árið 2026. Gögn um gistinætur fyrir hótel og gistiheimili samanlagt og gististaði alls eru þannig áætluð fyrir árið 2026. Tölur um gistinætur hótela í október 2026 eru bráðabirgðatölur.