FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 30. JÚLÍ 2026

Gistinóttum á hótelum fækkaði um 0,4% í júní 2026 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferðaþjónustu á Íslandi. Alls voru gistinæturnar rúmlega 532.000 á landsvísu en til samanburðar voru þær tæplega 535.000 á sama tíma árið 2025.

Mest fjölgaði gistinóttum á Suðurlandi eða um tæplega 15 þúsund (10,9%). Þá var 5,8% aukning í fjölda gistinátta á Norðurlandi og nær engin breyting á Austurlandi (0,1%). Í öðrum landshlutum fækkaði gistinóttum og það hlutfallslega mest á Suðurnesjum eða um 7,9%. Á Vesturlandi og Vestfjörðum dróst fjöldinn saman um 1,6%. Mest var fækkunin hins vegar á höfuðborgarsvæðinu þar sem fjöldi gistinátta dróst saman um rúmlega 16 þúsund eða 6,5%. Á fyrstu sex mánuðum ársins var fjöldi gistinátta á hótelum lítið breyttur miðað við sömu mánuði árið 2025 þar sem aðeins 0,4% aukning var á milli ára.

Gistinætur erlendra ferðamanna voru um 483.000, eða 91% af gistinóttum hótela, og var það 0,5% fækkun frá fyrra ári. Gistinætur Íslendinga á hótelum voru rúmlega 49.000 sem var 1,1% meira en í júní árið 2025. Flestar erlendar gistinætur tilheyrðu Bandaríkjamönnum eða rúmar 172 þúsund og fækkaði þeim um 8,5% á milli ára. Þá fækkaði gistinóttum Þjóðverja (48 þúsund) um 16,5% og Breta (27 þúsund) um 3,6%. Aftur á móti fjölgaði gistinóttum Kínverja (34 þúsund) um 31,0%.

Framboð hótelherbergja jókst um 3,3% á landinu í júní. Mest jókst framboð herbergja hlutfallslega á Suðurlandi (13,3%). Um 3,4% aukning var á Norðurlandi auk þess sem lítil háttar aukning var á höfuðborgarsvæðinu (0,9%). Í öðrum landshlutum fækkaði herbergjum. Þannig dróst framboð saman um 5,4% á Suðurnesjum, 1,3% á Vesturlandi og Vestfjörðum og 0,9% á Austurlandi. Alls voru 182 hótel starfandi í júní 2026 með 12.670 herbergi og var fjöldinn aðeins meiri en á sama tíma árið 2025 þegar alls voru starfandi 178 hótel. Á höfuðborgarsvæðinu voru rekin 59 hótel með alls 5.671 herbergi og 54 á Suðurlandi með 3.188 herbergi.

Herbergjanýting dróst saman um 1,6 prósentustig á landinu í heild og var minnkun í öllum landshlutum nema á Austurlandi þar sem aukningin var 3,2 prósentustig og Norðurlandi þar sem nýtingin jókst um 1,3 prósentustig. Á höfuðborgarsvæðinu dróst nýting herbergja saman um 3,4 prósentustig. Þá var samdráttur um 1,7 prósentustig á Suðurlandi, 0,7 prósentustig á Suðurnesjum og 0,1 prósentustig á Vesturlandi og Vestfjörðum. Í júní var mesta nýtingin á Suðurlandi (82,2%) og því næst á Austurlandi (80,4%).

Allir gististaðir
Þegar allir skráðir gististaðir (hótel, gistiheimili, tjaldsvæði, orlofshús, o.fl.) eru skoðaðir var áætlaður heildarfjöldi gistinátta í júní rúmlega 1.102.000. Þetta var 1,0% aukning miðað við sama tíma árið 2025 en þá var heildarfjöldi gistinátta á öllum gististöðum tæplega 1.091.000. Meginþorri gistinátta var á hótelum og gistiheimilum eða tæplega 695.000 (rúmlega 532.000 á hótelum og rúmlega 162.000 á gistiheimilum) en rúmlega 407.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæðum, orlofshúsum, o.s.frv.).

Lýsigögn
Tölur um gistinætur fyrir skráða gististaði eru fengnar úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Gögn sem fást frá gististöðum geta innihaldið tölur um fjölda gistinátta af óþekktum þjóðernum og er þeim tölum dreift með hlutfallslegum hætti á þekkt þjóðerni hverju sinni.

Tölur um gistinætur á öðrum gististöðum en hótelum eru bráðabirgðatölur fyrir árið 2026. Gögn um gistinætur fyrir hótel og gistiheimili samanlagt og gististaði alls eru þannig áætluð fyrir árið 2026. Tölur um gistinætur hótela í júní 2026 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.