FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 27. ÁGÚST 2026

Fjöldi gistinátta á hótelum var óbreyttur í júlí 2026 miðað við fyrra ár samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferðaþjónustu á Íslandi. Alls voru gistinæturnar rúmlega 648.000 á landsvísu.

Mest fjölgaði gistinóttum á Norðurlandi eða um 4,1%. Þá var 1,5% aukning á Suðurnesjum og 1,0% á Suðurlandi. Á Austurlandi fækkaði gistinóttum um 2,3% og á Vesturlandi og Vestfjörðum var fækkun um 0,8%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði svo gistinóttum um tæplega 4.700 eða 1,6%. Á fyrstu sjö mánuðum ársins var fjöldi gistinátta á hótelum lítið breyttur miðað við sömu mánuði árið 2025 þar sem aðeins 0,2% aukning var á milli ára.

Gistinætur erlendra ferðamanna voru um 593.000, eða 92% af gistinóttum hótela, og var það 0,8% aukning frá fyrra ári. Gistinætur Íslendinga á hótelum voru rúmlega 55.000 sem var 8,3% minna en í júlí árið 2025. Flestar erlendar gistinætur tilheyrðu Bandaríkjamönnum eða rúmar 206 þúsund og fækkaði þeim um 3,4% á milli ára. Þá fækkaði gistinóttum Þjóðverja (53 þúsund) um 4,6% en aukning var á fjölda gistinátta Breta (34 þúsund) um 4,7% og Kínverja (41 þúsund) um 14,5%.

Framboð hótelherbergja jókst um 1,4% á landinu í júlí. Mest jókst framboð herbergja hlutfallslega á Norðurlandi (5,4%). Þá var einnig 3,8% aukning á Suðurlandi og 0,9% aukning á höfuðborgarsvæðinu. Í öðrum landshlutum dróst framboðið saman og það mest á Suðurnesjum eða um 5,4%. Á Vesturlandi og Vestfjörðum var minnkunin 1,3% og 0,9% á Austurlandi. Alls voru 183 hótel starfandi í júlí 2026 með 12.696 herbergi og var fjöldinn litlu meiri en á sama tíma árið 2025 þegar alls var starfandi 181 hótel. Á höfuðborgarsvæðinu voru rekin 59 hótel með alls 5.670 herbergi og 55 á Suðurlandi með 3.215 herbergi.

Herbergjanýting var lítið breytt á milli ára og jókst um aðeins 0,1 prósentustig á landinu í heild. Mest jókst nýtingin á Suðurnesjum eða um 5,9 prósentustig en þá var einnig 1,1 prósentustiga aukning á Austurlandi og 0,9 prósentustiga aukning á Vesturlandi og Vestfjörðum. Á Norðurlandi dróst herbergjanýting saman um 2,4 prósentustig og um 0,5 prósentustig á höfuðborgarsvæðinu. Á Suðurlandi var nýtingin óbreytt. Í júlí var mesta nýtingin á Suðurlandi (92,8%) og því næst á Austurlandi (92,2%).

Allir gististaðir
Þegar allir skráðir gististaðir (hótel, gistiheimili, tjaldsvæði, orlofshús, o.fl.) eru skoðaðir var áætlaður heildarfjöldi gistinátta í júlí tæplega 1.748.000. Þetta var 4,4% aukning miðað við sama tíma árið 2025 en þá var heildarfjöldi gistinátta á öllum gististöðum rúmlega 1.674.000. Meginþorri gistinátta var á hótelum og gistiheimilum eða tæplega 863.000 (rúmlega 648.000 á hótelum og rúmlega 214.000 á gistiheimilum) en um 885.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæðum, orlofshúsum, o.s.frv.).

Lýsigögn
Tölur um gistinætur fyrir skráða gististaði eru fengnar úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Gögn sem fást frá gististöðum geta innihaldið tölur um fjölda gistinátta af óþekktum þjóðernum og er þeim tölum dreift með hlutfallslegum hætti á þekkt þjóðerni hverju sinni.

Tölur um gistinætur á öðrum gististöðum en hótelum eru bráðabirgðatölur fyrir árið 2026. Gögn um gistinætur fyrir hótel og gistiheimili samanlagt og gististaði alls eru þannig áætluð fyrir árið 2026. Tölur um gistinætur hótela í júlí 2026 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.