Bensínbílum á heimilum hefur fækkað nokkuð jafnt og þétt frá árinu 2018. Fjöldi rafmagns- og tengiltvinnbíla hefur hins vegar vaxið ört á saman tíma.
Í ágúst 2025 voru um 355 þúsund bifreiðar skráðar á Íslandi. Af þessum fjölda voru 267 þúsund í umráðum einstaklinga eða heimila eða 75,2% af heildarfjöldanum.
Fjöldi rafmagns- og tengiltvinnbíla var 61.290 og þar af voru 46.927 í umráðum heimila eða 77%.