Gagnasöfnun – Spyrlar

Hagstofa Íslands óskar eftir að ráða spyrla til starfa í tímabundin verkefni í símaveri Hagstofunnar í Reykjavík. Áætlað er að verkefnum ljúki í maí 2023.

Starfið felst í að hafa samband símleiðis við þátttakendur í rannsóknum og safna gögnum með viðtölum.

Hæfniskröfur:

  • Eiga auðvelt með samskipti við fólk í gegnum síma og hefur ánægju af þeim
  • Kurteisi, þolinmæði, nákvæmni og ábyrg vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta,
  • Gott vald á íslensku, ensku og jafnvel fleiri tungumálum
  • Vera að minnsta kosti 18 ára
  • Reynsla af spyrla- eða úthringistörfum er kostur.

Spyrlar vinna 2 til 4 daga í viku eftir föstu vaktskipulagi. Vinnutími er frá 17 til 21 mánudaga til fimmtudaga og frá 13 til 17 á sunnudögum. Um tímavinnu er að ræða. Starfshlutfall er allt að 30%.

Öll kyn eru hvött til að sækja um. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Hagstofu Íslands við ráðningar í störf.

Umsóknarfrestur er til og með 30. janúar 2023.

Nánari upplýsingar um starfið veita:
Guðríður Helga Þorsteinsdóttir - gudridur.h.thorsteinsdottir@hagstofa.is - 528-1223
Linda Rós Reynisdóttir - linda.r.reynisdottir@hagstofa.is - 528-1231

Smelltu hér til að sækja um starfið