Aðferðir við hindrun rekjanleika í samanteknum gögnum


  • Hagtíðindi
  • 02. september 2020
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Hagstofa Íslands hefur gefið út á ensku greinargerðina „Aðferðir við hindrun rekjanleika í samanteknum gögnum. Athugun á miðlun upplýsinga um ný íslensk smásvæði“. Markmiðið með greinargerðinni er að útskýra og prófa helstu aðferðir við hindrun rekjanleika í samanteknum gögnum með tölfræðihugbúnaðinum R. Til þess að sýna fram á virkni aðferðanna er þeim beitt til að hindra rekjanleika í niðurstöðum íslenska manntalsins frá 2011. Niðurstöðurnar byggja á gögnum sem hafa verið auðguð með svæðisbundnum þáttum sem eru byggðir á nýjum smásvæðum fyrir Ísland. Aðferðirnar eru metnar út frá ýmis konar mælingum á nytsemi og áhættu við birtingu niðurstaðnanna.

Til baka