Vinnumarkaður á 4. ársfjórðungi 2013


  • Hagtíðindi
  • 29. janúar 2014
  • ISSN: 1670-4509

  • Skoða PDF
Á fjórða ársfjórðungi 2013 voru 184.600 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 176.200 starfandi og 8.400 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 80,7%, hlutfall starfandi mældist 77% og atvinnuleysi var 4,5%. Starfandi fjölgaði um 7.800 og fjöldi atvinnulausra stóð í stað frá fjórða ársfjórðungi 2012. Atvinnulausar konur voru 4.000 eða 4,4% og atvinnulausir karlar voru 4.400 eða 4,6%. Atvinnuleysi var 4,9% á höfuðborgarsvæðinu en 3,9% utan þess.

Til baka