Vinnumarkaður á 4. ársfjórðungi 2012


  • Hagtíðindi
  • 30. janúar 2013
  • ISSN: 1670-4509

  • Skoða PDF
Á fjórða ársfjórðungi 2012 voru 176.800 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 168.400 starfandi og 8.400 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 78,8%. Hlutfall starfandi mældist 75% og atvinnuleysi var 4,7%. Starfandi fjölgaði um 3.000 manns og atvinnulausum fækkaði um 2.200 frá fjórða ársfjórðungi 2011. Þegar á heildina er litið fækkaði einnig fólki sem stendur utan vinnumarkaðar um 500 manns. Atvinnuleysi var 5,1% á höfuðborgarsvæðinu en 4,1% utan þess.

Til baka