Vinnumarkaður á 3. ársfjórðungi 2013


  • Hagtíðindi
  • 30. október 2013
  • ISSN: 1670-4509

  • Skoða PDF
Á þriðja ársfjórðungi 2013 voru 188.500 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 180.200 starfandi og 8.300 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 82,7%, hlutfall starfandi mældist 79,1% og atvinnuleysi var 4,4%. Starfandi fjölgaði um 7.500 og atvinnulausum fækkaði um 800 frá þriðja ársfjórðungi 2012. Atvinnulausar konur voru 3.800 eða 4,3% og atvinnulausir karlar voru 4.500 eða 4,5%. Atvinnuleysi var 5% á höfuðborgarsvæðinu en 3,2% utan þess.

Til baka