Vinnumarkaður á 2. ársfjórðungi 2017


  • Hagtíðindi
  • 17. ágúst 2017
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Á öðrum ársfjórðungi 2017 voru að jafnaði 202.500 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 195.600 starfandi og 7.000 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 84,4%, hlutfall starfandi 81,5% og atvinnuleysi var 3,4%. Frá öðrum ársfjórðungi 2016 fjölgaði starfandi um 3.500 en hlutfall af mannfjölda lækkaði um 0,4 prósentustig. Atvinnulausum fækkaði á sama tíma um 200 manns og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli lækkaði um 0,2 prósentustig. Atvinnulausar konur voru 3.300 og var atvinnuleysi á meðal kvenna 3,5%. Atvinnulausir karlar voru 3.700 eða 3,4%. Atvinnuleysi var 3,9% á höfuðborgarsvæðinu og 2,6% utan þess.

Til baka