Vinnumarkaður á 2. ársfjórðungi 2012


  • Hagtíðindi
  • 27. júlí 2012
  • ISSN: 1670-4509

  • Skoða PDF
Á öðrum ársfjórðungi 2012 voru að jafnaði 185.400 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 172.100 starfandi og 13.300 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 82,8%. Hlutfall starfandi mældist 76,9% og atvinnuleysi var 7,2%. Starfandi fjölgaði um 2.200 manns og atvinnulausum fækkaði um 2.500 frá öðrum ársfjórðungi 2011. Á sama tíma stóð fjöldi fólks utan vinnumarkaðar nánast í stað. Atvinnuleysi var 8% á höfuðborgarsvæðinu en 5,6% utan þess.

Til baka