Vinnumarkaður á 1. ársfjórðungi 2016


  • Hagtíðindi
  • 06. maí 2016
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Á fyrsta ársfjórðungi 2016 voru 190.400 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 184.300 starfandi og 6.100 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 81,8%, hlutfall starfandi mældist 79,2% og atvinnuleysi var 3,2%. frá fyrsta ársfjórðungi 2015 fjölgaði starfandi fólki um 5.100 og hlutfallið jókst um 1,7 prósentustig. Atvinnulausum fækkaði á sama tíma um 1.900 manns og hlutfallið sömuleiðis um 1,1 prósentustig. Atvinnulausar konur voru 2.300 og var atvinnuleysi á meðal kvenna 2,5%. Atvinnulausir karlar voru 3.900 eða 3,8%. Atvinnuleysi var 3,1% á höfuðborgarsvæðinu en 3.4% utan þess.

Til baka