Vinnumarkaður á 1. ársfjórðungi 2012


  • Hagtíðindi
  • 26. apríl 2012
  • ISSN: 1670-4509

  • Skoða PDF
Á fyrsta ársfjórðungi 2012 voru að jafnaði 176.200 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 163.500 starfandi og 12.700 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 78,8%. Hlutfall starfandi mældist 73,2% og atvinnuleysi var 7,2%. Starfandi fjölgaði um 1.300 manns og atvinnulausum fækkaði um 1.000 frá fyrsta ársfjórðungi 2011. Á sama tíma fjölgaði fólki utan vinnumarkaðar um 1.100. Atvinnuleysi var 8,1% á höfuðborgarsvæðinu en 5,5% utan þess.

Til baka