Vinnuafl á íslenskum vinnumarkaði árið 2022


  • Hagtíðindi
  • 02. mars 2023
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Árið 2022 voru að jafnaði um 217.600 manns á vinnumarkaði samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn. Af þeim voru rúmlega 209.400 starfandi og um 8.100 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 80,1%, hlutfall starfandi af mannfjölda 77,1% og atvinnuleysi var 3,7%. Atvinnulausum fækkaði um rúm 4.300 frá árinu 2021 og atvinnuleysið dróst saman um 2,2 prósentustig á milli ára. Atvinnuleysi á meðal kvenna var 3,4% að jafnaði og meðal karla var það 4,0%. Árið 2022 var atvinnuleysi að jafnaði 4,3% í Reykjavík, 3,6% í nágrenni Reykjavíkur og 3,4% utan höfuðborgarsvæðisins.

Til baka