Áfengisneysla 2003


  • Hagtíðindi
  • 16. mars 2004
  • ISSN: 1670-4622

  • Skoða PDF
Áfengissala hér á landi var um 19,2 millj. lítrar árið 2003 á móti 18,6 millj. lítra árið 2002. Aukningin er um 3,2%. Talið í alkóhóllítrum er aukningin hlutfallslega ekki eins mikil, eða 0,9% milli ára, úr 1.445 þús. alkóhóllítrum árið 2002 í 1.458 þús. alkóhóllítra árið 2003. Reiknað á hvern íbúa 15 ára og eldri, nam salan 6,52 alkóhóllítrum og minnkaði eilítið frá árinu áður þannig talið, en í lítrum talið jókst hún um rétt rúmlega 2%, eða úr 84,19 lítrum á hvern íbúa 15 ára og eldri í 86,07 lítra.

Til baka