Þjóðhagsspá á vetri 2017


  • Hagtíðindi
  • 03. nóvember 2017
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Útlit er fyrir kröftugan hagvöxt í ár en að það hægi á gangi hagkerfisins þegar líður á spátímann. Gert er ráð fyrir að á árinu 2017 aukist landsframleiðslan um 4,9%, einkaneysla um 7,8% og fjárfesting um 8,8%. Árið 2018 er reiknað með að hagvöxtur verði 3,1%, einkaneysla aukist um 5,3% og fjárfesting um 3,1%. Talið er að samneysla aukist um 2,2% árið 2017 og 1,3% árið 2018. Árin 2019–2023 er gert ráð fyrir að vöxtur landsframleiðslu verði í kringum 2,5%, einkaneysluvöxtur minnki úr 3,6% árið 2019 í 2,5% árið 2023, fjárfesting aukist um 2,1–3,9% og samneysla nálægt 1,8% á ári.

Til baka