Útgjöld til fræðslumála á Íslandi


  • Hagtíðindi
  • 02. desember 2008
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Árið 2007 námu heildarútgjöld til fræðslumála 106,4 milljörðum króna eða 8,2% af landsframleiðslu. Þar af var hlutur hins opinbera 96,3 milljarðar króna, 90,5% af útgjöldunum, en hlutur einkaaðila 10,1 milljarður eða 9,5% af útgjöldunum. Af heildarútgjöldum hins opinbera árið 2007 runnu 18,8% til fræðslumála. Sem hlutfall af landsframleiðslu hafa heildarútgjöld til fræðslumála hækkað úr 7,1% af landsframleiðslu 1998 í 8,2% á árinu 2007 eins og fyrr segir.

Til baka